Grunnnámskeið á AutoCAD Plant 3D
Þetta námskeið er ætlað þeim sem vilja nota AutoCAD Plant 3D til þess að hanna vinnslumannvirki í þrívídd, ásamt því að skjalfesta mannvirkið í formi teikninga af fyrirkomulagi, lagnateikninga, upplýsingar og efnislista.
Markmið
Þetta námskeið þjálfar þátttakendur í grundvallaatriðum AutoCAD Plant 3D svo þeir geti byggt og skjalfest 3D-líkanið af vinnslumannvirki á öruggan og skilvirkan hátt.
Á þessu námskeiði lærir þú hvernig byrja skal ný verkefni, hanna, setja saman og skjalfesta 3D líkön af vinnslumannvirki. Hér verður lærir þú að setja saman mannvirki úr stáli, hvernig á að draga saman, tengja og flytja inn búnað o.fl.. frá ýmsum kerfum, formum og þjónustum. Einnig verður farið yfir hvernig búnaði er breytt og hvernig skjalfestingu er háttað í formi teikninga af fyrirkomulagi og lagna og lista.
- Uppsetning
- Lagnahönnun í 3D-líkönum
- Lagfæringar á stál, búnaðar og lagnateikningum
- Magntökur
- Hönnun á stálmannvirkjum
- Búa til búnað og flytja inn búnað m.a. frá Inventor
- Kynning á röra vörulistum
- Uppsetning og útgáfa teikninga
- Uppsetning lagnateikninga ásamt magntöku með tilliti td. til álagsgreininga
Það sem þátttakendur námskeiðs hafa að segja:
„Þetta námskeið hefur gefið mér miklu betri innsýn í og skilning á því hvað AutoCAD Plant 3D getur gert og hvers ég get búist við af teiknurum sem teikna fyrir mig. Og líka gert það mögulegt að teikna sjálfur.“
„Mjög flott samantekt [Námsefni] sem hægt er að grípa í síðar.“
Þátttakendur námskeiðs fá:
- Aðgang að tölvu með öllum nauðsynlegum hugbúnaði
- Aðgang að vefkennslusvæðinu My NTI Academy
- Stafrænt vottorð að námskeiði loknu.
Hjá My NTI Academy færð þú aðgang að:
- Námsefni á stafrænu formi.
- Yfirsýn á öll þín stafrænu vottorð.
- Gagnlegar upplýsingar um hugbúnaðinn þinn og fleira tengdu.
- Reglulega uppfærð tips&tricks frá sérfræðingum NTI.
Praktískar upplýsingar
Dagsetning: 8. 9. og 15 október 2024.
Lengd: 3 dagar, kl. 9:00-16:00
Staðsetning: Vefnámskeið
Verð: kr. 258.000,-
Sérkjör fyrir viðskiptavini NTI, námsfólk og atvinnuleitendur.
Námsefni og kennsla á ensku.
Verum í góðu sambandi
Sláðu á þráðinn eða sendu línu
Sölustjóri NTI á Íslandi
Reykjavík - Ísland
+354 6998202